Hringekja og verslun með hugsjónir

Jón Bjarnason fv. ráðherra skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann gerir að umtalsefni hvernig skoðanir og áherslur stjórnmálaflokka sveiflast til þannig að skoðun eins flokks í dag verður skoðun þess næsta á morgun. Gefum Jóni orðið:

Framsóknarflokkurinn undir forystu Halldórs Ásgrímssonar tók mikla hægri sveiflu og reyndi að sverja af sér uppruna sinn af landsbyggðinni. Formaðurinn færði sig um set til Reykjavíkur og ásamt sínum nánustu samherjum breytti hann flokknum í miðjukrataflokk. ...

Á tíma Halldórs yfirbauð forysta Framsóknar sjálfan ESB-flokkinn, Samfylkinguna, í undirlægjuhætti gagnvart ESB og vildi komast þar inn í hraðferð. Svo mikið lá á að landinu var troðið inn í Schengen til að formaðurinn og aðrir ESB-sinnar þyrftu ekki að sýna vegabréf í reglubundnu flugi sínu til Brüssel. En forystan gleymdi rótunum og baklandið á landsbyggðinni hrundi og þá einnig hinn nýi vettvangur á mölinni. ESB-draumur Framsóknar varð að martröð. ...

 

Ný forysta með formanninn í broddi fylkingar var klók. Skipti alveg um stefnu og ásýnd og gerðist landsbyggðarflokkur og lagðist harkalega gegn umsókn og aðild að ESB.

Jón víkur síðan að sínum gamla flokki, VG og segir m.a.:

 Vinstrihreyfingin grænt framboð var fyrst og fremst stofnuð til að berjast gegn umsókn og aðild að ESB og fyrir náttúruvernd, jafnrétti, búsetujafnvægi og öðrum samfélagslegum gildum. Hreyfingin sótti í upphafi styrk sinn ekki hvað síst til landsbyggðarinnar. Sinn stóra kosningasigur 2009 vann VG m.a. vegna einarðrar andstöðu við umsókn og aðild að ESB og baráttunni gegn stóriðju en jafnframt stuðningi sínum við grunnatvinnuvegina. Það voru jú þessi gildi sem aðgreindu VG frá Samfylkingunni á sínum tíma, þegar þessir tveir flokkar voru stofnaðir.

Þrautaganga Framsóknarflokksins síðasta áratuginn hefði átt að vera öðrum víti til varnaðar, en svo var því miður ekki. VG breyttist smám saman í borgaralegan krataflokk, sótti um aðild að ESB, tók upp tækifærismennsku í umhverfismálum, skar sérstaklega niður grunnþjónustuna á landsbyggðinni, heilbrigðisstofnanir og löggæslu, og týndi sjálfum sér.

Stór hluti forystu VG missti tengsl við grasrótina sem áður hafði sett traust sitt á frambjóðendur flokksins vegna stefnufestu og skýrra skoðana. Fimm þingmenn sögðu skilið við hann eða hættu vegna ágreinings um framkvæmd á stefnunni. Landsfundarsamþykkt VG frá í vetur um áframhaldandi umsókn og innlimun í ESB var fyrir mörgum félaganum dropinn sem fyllti mælinn. Umhverfisverndin og stóriðjuandstaðan beið svo verulegan hnekki þegar ráðherrar og þingmenn VG samþykktu Bjarnarflag við Mývatn í nýtingarflokk og niðurgreidda stóriðju á Bakka.

Þegar hrun VG blasti við í lok kosningabaráttunnar var gerð örvæntingarfull tilraun til að auglýsa þau gildi sem í upphafi lögðu grunn að stefnu flokksins en hafði verið fórnað jafnt og þétt fyrir setu í ríkisstjórn með krötunum. Formaðurinn sagði af sér í skyndi, en varaformaðurinn, sem sagði í viðtali að aldrei hefði gengið hnífurinn á milli þeirra í neinu máli tók við. Slagurinn um trúverðugleikann mun því halda áfram. ...

Það verður því skondin hringferð, ef af verður. Framsóknarflokkurinn, einn harðasti ESB-flokkurinn fyrir nokkrum árum, stendur nú í lappirnar og afturkallar ESB-umsóknina eins og hann lofaði fyrir kosningar.  ...

 Sjá grein Jóns í heild sinni hér http://vinstrivaktin.blog.is/blog/vinstrivaktin/entry/1297526

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Jón segir að VG fékk mikið fylgi árið 2009 vegna andúðar á inngöngu í ESB.

Hvernig skýrir Jón lélegt fylgi Regnbogans 2013? 

kv

Sleggjan og Hvellurinn, 9.5.2013 kl. 19:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband