Utanríkisþjónusta ESB hyglir aðallega umsækjendum frá gamalgrónum ESB-ríkjum

Þeir sem hyggja á frama í utanríkisþjónustu ESB eiga litla von um að vera ráðnir í diplómatastöður á vegum sambandsins ef þeir eru ekki frá þeim löndum sem lengst hafa verið í ESB. Þetta sýnir skýrsla sem fram kom í desember síðastliðinn og hefur verið til umræðu að undanförnu. Vinnuaðstæður þykja ekki upp á marga fiska í ESB-utanríkisþjónustunni, en engu að síður hefur fjöldi umsækjenda sótt um þær stöður sem auglýstar hafa verið, þó mjög mismargir frá hverju landi fyrir sig.

Umsækjendur hafa verið margir frá nýjum ESB-löndum á borð við Tékkland, Búlgaríu og Rúmeníu en sárafáir komist að. Hins vegar voru örfáir umsækjendur frá Þýskalandi (1,8% umsækjenda) en þeir áttu meira en tvöfalt meiri möguleika á að komast að (3,9%). Ekki hafa fengist viðunandi skýringar á þessari slagsíðu, en hún þykir bera vinnubrögðum stjórnsýslunnar á þessu sviði sambandsins slæmt vitni. 

http://euobserver.com/18/116013

En kannski er það bara spurning um tíma hvenær þetta hættir að vera vandamál, fyrst jafnvel þingforseti ESB-þingsins er farinn að spá því að sambandið liðist í sundur, eins og nýlegar fregnir herma. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Þetta er nokkuð athyglisverð pæling.  Ef við gefum okkur það að SF og VG takist að lauma Íslandi inní ESB, hvað verður þá um  íslensku diplómatana og/eða starfsmennina sem starfa erlendis á okkar vegum hjá  EFTA?

Munu þeir fá forgang að stöðum hjá ESB eða verða þeir sendir heim og skipt út fyrir flokksvini aðildarsinna?

Kolbrún Hilmars, 26.4.2012 kl. 18:03

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

...hyglir...

Jón Steinar Ragnarsson, 26.4.2012 kl. 20:09

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sennilega er þeim sama, því ef þeim tekst að fá landið inn í ESB bíða þeirra góðar stöður í Lúxemburg eða Brussel með einkabílstjóra, villur og einkaskóla fyrir börnin, þeir geta svo sleikt sólina og gleymt gamla föðurlandinu sem þeir sviku inn í ESB. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2012 kl. 21:30

4 Smámynd: Vinstrivaktin gegn ESB

Að sjálfsögðu ,,hyglir" takk fyrir ábendinguna, stundum svolítil blinda á eigin texta. - a

Vinstrivaktin gegn ESB, 26.4.2012 kl. 23:57

5 identicon

Sem betur fer er störfum ekki úthlutað eftir kvótaskiptingu í ESB. Þar ræður alfarið hæfni. 

Þannig getur það verið tilviljun hvernig störfin dreifast á milli landa. Hins vegar eru ný lönd skemmra á veg komin í menntun íbúanna, lýðræðislegum vinnubrögðum og vönduðu stjórnarfari en hinar eldri. Það getur verið skýring.

Þátttaka Íslands í EES er hins vegar reynsla sem nýtist í þessu sambandi. Auk þess er Ísland mun þróaðra en þessi fyrrum austantjaldslönd sem hafa gengið í ESB á síðustu árum.

Ísland í ESB stendur því mun betur að vígi að þessu leyti.    

Ásmundur Harðarson (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 07:13

6 identicon

Ásmundur, láttu þig dreyma. Þótt ESB sé ólýðræðislegur valdasjúklingur þá er fólkið þar ekki það heimskt að ráða vitleysing eins og þig í vinnu.

Og af hverju ertu að ummæla þínum vangaveltum hérna? Ertu alveg blindur og veruleikafirrtur?

Það er enginn hérna inni sem tekur mark á þér.

Þú ert eins og röflandi gömul kelling.

Ertu kanski röflandi gömul kelling?

palli (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 08:15

7 identicon

Það er rétt að segja: Utanríkisþjónusta ESB hyglar...... Leiðréttingin er því röng. Í eftirfarandi hlekk eru allar myndir orðsins birtar.

http://bin.arnastofnun.is/leit.php?q=hygla 

Ég veit ekki hvort aðgangur að hlekknum sé öllum opinn. Ég hef aðgang að honum með áskrift að snara.is. Þarna kemur skýrt fram að rétt er að segja í framsöguhætti nútíðar: 

Ég hygla, þú hyglar, hann, hún eða það hyglar (en ekki hyglir).

Ásmundur Harðarson (IP-tala skráð) 27.4.2012 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband