Jón Bjarna: Náið samband við Færeyinga og Grænlendinga er nauðsyn

Ýmislegt á eftir að koma upp úr hattinum í nýgerðum makrílveiðisamningum. Að deila og drottna með hótunum, þvingunaraðgerðum og blíðmælgi á víxl er þekkt aðferð yfirgangssamra stórríkja gangvart þeim minni, segir Jón Bjarnason, fyrrv. sjávarútvegsráðherra á vefsíðu sinni jonbjarnason.blog.is s.l. mánudag undir fyrirsögninni „Nú skal þjarmað að Grænlendingum í makrílnum“. Hann bætir síðan við:

 

„ESB hafði sett Færeyingum rækilega stólinn fyrir dyrnar með nánast hryðjuverkaaðgerðum sem fólust í því að banna Færeyskum skipum og fiskvinnslum að landa eða selja fiskafurðir í ESB löndunum. Nærri 100% af gjaldeyristekjum Færeyinga er háð fiskútflutningi. Fiskveiðilögsaga Færeyinga liggur að lögsögu annarra ríkja eins og Noregi og Skotlandi og gagnkvæmar fiskveiðiheimildir eru þeim afar mikilvægar.

 

 Að mínu mati áttu Íslendingar að standa mun þéttar með Færeyingum gegn aðgerðum ESB. Minnumst þess þegar Færeyingar einir þjóða stóðu með Íslendingum í bankahruninu gegn stórríki Evrópu. Íslendingum hafði jú verið hótað sömu þvingunum og refsiaðgerðum vegna makrílveiðanna  og Færeyingar voru beittir. Færeyingar eru þó mun minna ríki en Ísland og enn háðara fiskveiðum en við. Því var það léttar fyrir stórríkið ESB  að komast upp á milli Íslendinga og Færeyinga með því að pína þá síðarnefndu en strjúka Íslendingum samtímis og þeim var hótað.

 

Íslendingar áttu að taka frumkvæðið, hafna viðræðum við ESB undir hótunum og viðskiptaþvingunum og taka upp mjög náið samstarf við Færeyinga og Grænlendinga, halda þeim þétt að sér. Reynslunni ríkari af makrílveiðum Íslendinga ætlar nú ESB  að girða fyrir að Grænlendingar geti á eigin spýtur veitt makríl og þróað þær veiðar.“

 

Jafnframt vekur Jón Bjarnason athygli á þeim afarkostum „um aðgengi að fiskimiðunum sem ESB setti Grænlendingum þegar þeir sömdu sig úr Efnahagsbandalaginu 1985. Markmið stórríkisins ESB er að deila og drottna í fiskveiðum á Norðurslóð. Og sundruð strandríkin eru þeim auðveld bráð. Íslendingar eiga þann góða kost að setja einhliða makrílkvóta og halda sínum hlut frá fyrri árum 16- 17 % af heildarveiði og leita aftur samstarfs við Grænlendinga og Færeyinga.

 

Norðmenn munu seint semja við Íslendinga um makríl meðan ESB - umsóknin er virk.  Því fari Ísland í ESB fer makríllkvótinn með  til Brussel og verður hluti af heildarmakrílkvóta ESB, óháð því hvort hann veiðist þá hér eða ekki. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það er svo óraunsæi í þessum pistli - að maður furðar sig á að maðurinn hafi verið ráðherra og átt að sjá um og vernda hagsmuni Íslands.

Hann hefur greinilega ekki frétt af því eða haft hugmynd um, að færeyingar eru afar hneykslaðir á framferði Íslands í makrílmálinu og eru þeirrar skoðunar, sem eðlilegt er, að alveg fráleitt hafi verið af Íslandi að ætla að veiða makríl í Grænlenskum sjó fyrir utan aftöluna sem samið væri um milli partanna.

Jafnframt snerust aðgerðir ESB varðandi Færeyja um síld - og reyndar ganga Færeyingar gegn hagsmunum Íslands í síldarmálinu - en Jón Bjarnason og svokölluð ,,vinstri" vakt vill kannski bara láta Færeyinga fá allan síldarkvóta Íslands? Jú jú, við skulum bara gera það. Láta Færeyinga hafa allan síldarkvótann. Okkur munar ekkert um það. Getum bara stundað sjóræningaveiðar í grænlenskum sjó til að bæta það upp.

Ennfremur snerust fiskimál ESB og Grænlands um það, að Grænlendingar vildu alveg endilega fá ESB til að veiða fisk og borga duglega fyrir. Það er opinberlega skjalfest að ESB borgar miklu miklu meira fyrir þessar veiðiheimildir heldur en raunsætt er. Þessi greiðsla er beisiklí bara stuðningur við harðbýlt svæði Grænlands.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 23.3.2014 kl. 14:11

2 Smámynd: Elle_

Góður pistill frá Jóni.  Íslensk stjórnvöld áttu og ættu að standa með Færeyingum gegn yfirvöðslu Brussel.  Skömm að gera það ekki.  Færeyingar hafa verið bestu vinir okkar. 

Skil ekki alveg hinar óstoppandi Brusselstjörnur þessa Ómars, nema það sé alltaf kolsvarta myrkur í dalnum hans.

Elle_, 23.3.2014 kl. 17:17

3 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það kemur alltaf betur og betur í ljós að Jón Bjarnason er sá stjórnmálamaður sem best hefur verið treystandi í samningum við erlend ríki.

Enda er maðurinn frá Asparvík á Ströndum og þekkir bæði flatningshníf og stýristauma. 

Árni Gunnarsson, 23.3.2014 kl. 18:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband