Eina von VG er að bakka nú út úr öngstræti aðildarumsóknar

Það er rétt hjá Ögmundi að VG þarf að endurstilla stefnuna. Hitt er óraunhæft með öllu hjá Árna Þór Sigurðssyni að VG fái 10 til 11 þingsæti í næstu kosningum  nema því aðeins að horfið sé frá dekri við aðildarstefnu Samfylkingar. Áframhaldandi aðildarumsókn í boði VG er ávísun á hrun.

 

Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup hefur fylgi VG verið um 11-12% á þessu ári, seinast 11,7%. Það fylgi myndi skila um það bil 6-8 þingmönnum inn á þing, en í seinustu kosningum fékk VG 21,7% og 14 þingmenn. Í viðtali í Mbl. í dag fullyrðir Árni Þór Sigurðsson að það sé „alls ekki óraunhæft“ að flokkurinn fái „14-15% fylgi og 10-11 þingsæti, jafnvel meira“.

 

Árni Þór væri sem sagt ánægður með að VG tapaði ekki nema þriðjungi fylgisins frá því sem var 2009. Kannanir benda þó til þess að VG tapi helming fylgis síns og hafa verður í huga að VG er á stöðugri niðurleið. Fylgi VG samkvæmt könnunum Gallup var um 15% á haustmánuðum fyrir einu ári og VG hefur því miklu tapað á þessu eina ári. Með sama áframhaldi gæti VG endað í 8-9% fylgi NEMA flokkurinn taki sig á og endurskoði stefnu sína. Þúsundir kjósenda sem enn styðja VG munu ekki sætta sig við að flokkurinn gangi til kosninga með þá stefnu að aðildarumsókninni verði haldið áfram á næsta kjörtímabili.

 

Á heimasíðu sinni  skrifar Ögmundur Jónasson:

 

„Vinstrihreyfingin grænt framboð þarf að endurstilla stefnuna eftir að hafa einbeitt sér að því að ausa bátinn í hartnær fjögur ár.“

 

Orð Ögmundar vekja von um stefnubreytingu VG. Það er eina lífsvon VG. Í pistli sínum hrósar Ögmundur Guðfríði Lilju sem nú gefur ekki aftur kost á sér til framboðs. Við tökum undir þau orð. Í pistlinum segir Ögmundur:

 

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir hefur gefið út tilkynningu um að hún muni ekki gefa kost á sér í komandi Alþingiskosningum. Það er mikil eftirsjá að Guðfríðu Lilju úr stjórnmálum. Hún hefur reynst staðföst baráttukona fyrir þeim hugsjónum og gildum sem Vinstrihreyfingin grænt framboð er reist á og þeim loforðum sem flokkurinn hefur jafnan gefið fyrir kosningar.

Í yfirlýsingu Guðfríðar Lilju kemur fram þakklæti í garð samherja sem settu traust sitt á hana en þar er jafnframt að finna fyrir gagnrýni sem ég tel að VG eigi að taka til sín og reyndar allir stjórnmálaflokkar á þingi.

 

Gegn einstefnumenningu

 

Í yfirlýsingu Guðfríðar Lilju segir m.a.: "Við gerðum okkur mörg hver vonir um nýja og breytta tíma en því er ekki að leyna að þar hefur margt valdið vonbrigðum. Vonandi bera stjórnmálaflokkar, ríkisstjórn og Alþingi gæfu til þess í framtíðinni að hafna einstefnumenningu hrunsins og fagna þess í stað fjölbreyttum sjónarmiðum. Ýmislegt hefur áunnist þrátt fyrir erfiðleika og ég er stolt af því að hafa tekið þátt í því sem til framfara horfir. Miklu er um vert fyrir litla þjóð að muna eftir öllu því sem sameinar okkur en ekki sundrar og það er óskandi að þeir lærdómar sem dregnir verða af þessu umbrotaskeiði verði til góðs fyrir framtíðina. Ég tók ákvörðun um að fara í stjórnmál til að berjast fyrir betra samfélagi og virðingu fyrir náttúru Íslands og vonast áfram til að geta látið gott af mér leiða með öðrum hætti. Ég þakka stuðningsmönnum víðs vegar að hjartanlega fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt á þessari vegferð og óska samstarfsfólki alls góðs þótt leiðir skilji."

 

Gagnrýni já, persónuníð nei

 

Enginn þarf að velkjast í vafa um hvert Guðfríður Lilja er hér að fara. Niðurskurðurinn í heilbrigðiskerfinu, hve langt hefur þar verið gengið og annars staðar innan velferðarþjónustunnar, eignarhald á vatni og öðrum náttúruauðlindum, Magma Energy, hvernig taka skyldi á skuldavanda heimilanna að ógleymdu Icesave og ESB, eru allt dæmi um mál sem leiddu til átaka, svo einstrengingslegra og óbilgjarnra á stundum, meðal annars í hennar garð, að mig grunar að hér sé komin skýringin á því að hún telur vera forgangsatriði stjórnmálanna að losna úr viðjum „einstefnumenningar hrunsins".

Það er ekkert við það að athuga að menn gagnrýni félaga sína á málefnalegum forsendum. Verra er ef gagnrýnin er af óvild, rætin og ómálefnaleg.

 

Góðir félagar!

 

A vinstri væng stjórnmálanna hefur lengi tíðkast að tala um flokksfélaga sína sem félaga. Það þekki ég líka úr verkalýðshreyfingunni. Þetta er falleg hugsun svo lengi sem hugur fylgir máli; að viðkomandi sé annt um þá sem slíka. Á því er þó allur gangur. Þannig sendir Björn Valur Gíslason, alþingismaður, nýlega nokkrum "félögum" sínum, núverandi og fyrrverandi, kveðjur i viðtali í tímaritinu Herðubreið. Úrdráttur úr þessu viðtali hefur birst á netmiðlum og farið víða á netinu að undanförnu, enda Björn Valur löngu búinn að uppgötva að með því að nota nógu groddalegt málfar um menn og málefni getur hann náð athygli fjölmiðla.

 Í viðtalinu segir hann að snemma á kjörtímabilinu hafi orðið ljóst að "mörgum hraus hugur við því sem framundan var og virtust ekki hafa bein til að standast álagið. Enda fór það lið á endanum í ýmist aðra flokka eða í óábyrga pólitíska eyðimerkurgöngu sem þau ráfa enn í." Meira af þessu tagi er haft eftir hinum „góða félaga".

 Þau sem hljóta að taka þetta til sín eru þau sem núverandi forsætisráðherra kallaði svo smekklega á sínum tíma villiketti fyrir að láta illa að stjórn. Í þeim hópi var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.

 

Um sterk bein og veik

 

Auðvitað hafa margir kiknað i hnjáliðum undan öllu þessu. En það eru ekki Björn Valur eða félagar á Alþingi, heldur fólk sem hefur misst eigur sínar vegna okurkjara, fólkið sem misst hefur vinnuna á heilbrigðisstofnunum, í skólum, félagsþjónustunni og löggæslunni. Við erum búin að heyra margar hreystisögur af ráðamönnum að bjarga þjóð sinni. En er ekki komið nóg af tali okkar um meint afreksverk? Ég hef grun um að hjá ráðamönnum stjórnmálanna sé ekki hin sterku bein að finna; nema hreystimennin teljist þeir sem duglegastir eru að skera niður, snauðir tilfinningum gagnvart kjörum annars fólks, sjálfir sæmilega óhultir. Gæti það verið svo í hugum einhverra, að því tilfinningalausari sem menn eru þegar niðurskurðarsveðjum er sveiflað, þeim mun eftirsóknarverðari séu þeir sem stjórnmálamenn og þá væntanlega betri félagar? Þá verður líka skiljanleg hin pólitíska sýn og leiðarljós: Góður félagi! Ef þú samþykkir ekki möglunarlaust það sem fyrir þig er lagt, þá  ert þú veikgeðja villuráfandi vesalingur.

 Þegar slík sjónarmið verða ofan á er hætt við að þeim fjölgi sem ekki vilja teljast góðir félagar!

 

Ekki nóg að komast fyrir hornið

 

Ég tek undir með Guðfríði Lilju Grétarsdóttur að þessari einstefnumenningu verður að linna. Vinstrihreyfinigin grænt framboð þarf að endurstilla stefnuna eftir að hafa einbeitt sér að því að ausa bátinn í hartnær fjögur ár. Okkur hefur tekist að andæfa gegn virkjunarofbeldi, hamla gegn ásælni erlendra auðmanna, hægja sókn innheimtusveita fjármálavaldsins, hefja alvöru baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi, undirbúa sókn til beins lýðræðis. En margt - alltof margt er ógert. Fjármálakerfið er í of ríkum mæli að rísa í sinni gömlu mynd, eignarhaldið á vatninu hefur ekki verið fært almenningi og aðgerðir hafa um of verið sniðnar að því að komast fyrir hornið. 

Við þurfum nú að herða róðurinn og taka slaginn við fjármálavaldið af auknu afli og ganga erinda almennings og þjóðarinnar og gefa ekki eftir með þjónkun gagnvart fjárfestingarhrægömmum.

 

Hrunverjar í startholum!

 

Munum að andvaraleysi okkar getur fært valdatauma í þjóðfélaginu aftur í hendur þeirra sem bjuggu í haginn fyrir hrunið, með einkavæðingu og misskiptingarstefnu á nánast öllum sviðum þjóðlífsins. Það er hollt að hlusta vel eftir því sem talsmenn Sjálfstæðisflokksins mæla þessa dagana. Þeir tala mjúklega en, sjá, enn vilja þeir skera niður og einkavæða og afsala okkur forræði á auðlindum þjóðarinnar. Vilji menn hreyfa við tilfinningalífi Sjálfstæðisflokksins skulu menn ræða mikilvægi þess að færa eignarhald á vatni til almennings. Og hvað skyldi það þýða þegar talað er um skattalækkun og minni ríkisútgjöld annað en einkavæðingu velferðarþjónustunnar.

 

Viljum eiga samleið með framfarasinnuðu fólki

 

Með allt þetta í huga þarf félagshyggjufólk og þá sérstaklega við í Vinstrihreyfingunni grænu framboði að setja á oddinn sem aldrei fyrr, hugsjónir um velferð og jöfnuð og baráttu fyrir eignarhaldi á náttúruauðlindum og lýðræði. Þá mun VG eiga samleið með róttæka Íslandi. Annars skilja leiðir með flokknum og framfarasinnuðu fólki. En til þess að þetta megi verða þarf VG að huga að eigin vinnubrögðum og innra lýðræði. Ákvörðun Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur um að segja skilið við stjórnmálin á að verða tilefni til að staldra við; tilefni til endurmats á vinnubrögðum og áherslum.

Okkur hefur vissulega tekist vel til um ýmislegt á erfiðum samdráttartímum. En í öðru hefur okkur mistekist. Belgingur og hrokatal á því ekki við. Við eigum að sýna umburðarlyndi gagnvart skoðunum annarra sem eru í okkar pólitíska ranni og verða gagnrýnni á okkur sjálf þegar um er að ræða trúverðugleika okkar gagnvart þeim hugsjónum sem við höfum heitið að standa vörð um.

 


mbl.is Ögmundur: VG þarf að endurstilla stefnuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ástæðan fyrir fylgishruni VG er sundrungin í flokknum. Sundrungaröflin njóta mjög lítils fylgis. Þannig eiga Jón Bjarnason og Ögmundur Jónasson mestan þátt í fylgishruninu.

Flokkar sem eru ekki tilbúnir til að miðla málum, eins og nauðsynlegt er til að geta myndað ríkisstjórn, verða alltaf í stjórnarandstöðu og eru því dæmdir til ævarandi áhrifaleysis. Það er tilgangslaust að greiða slíkum flokki atkvæði.

Verstir eru þó þeir sem styðja myndun ríkisstjórnar, og eru jafnvel ráðherrar í henni, en berjast síðan gegn stefnu hennar. Það eru rugludallar.

Ég held að VG þurfi að losna við Jón Bjarnason og Ögmund. Þá kemst á nægilegur friður í flokknum til að hann geti náð sér á strik. Ég tel útilokað að sérframboð þeirra nái manni a þing. 

Ásmundur (IP-tala skráð) 5.11.2012 kl. 15:02

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Ásmundur - hefur greinilega ekkert vit á innanflokksmálum VG eða hvernig núverandi og fyrrverandi stuðningsmenn þess flokks haga sér eða hugsa.

Fyrir honum vakir bara eitt og það er að þessi glórulausa ESB umsókn komist í höfn.  Yfir því er hann vakin og sofin og sjálfssagt í vinnu við það að vakta hér á heimasíðu "Vinstri vaktarinnar"

Einstefnuleg ESB sinnuð sjónarmið hans hafa sem betur fer engan stuðning eða hljómgrunn hér meðal lesenda síðunnar, eins og marg oft hefur komið í ljós.  

Gunnlaugur I., 5.11.2012 kl. 16:00

3 identicon

Maður þarf ekki að að "hafa vit á innanflokksmálum VG" til að gera sér grein fyrir að innanflokkssundrung flæmir stuðningsmenn frá hvað flokki sem er. Þetta hefur margsýnt sig.

Maður þarf heldur ekki að "hafa vit á innanflokksmálum VG" til að átta sig á að sundrungaröflin eru lítil en hávaðasöm klíka sem nýtur lítils stuðnings.

Það sést kannski best á því að Steingrímur nýtur stuðnings til forystu frá yfirgnæfandi meirihluta stuðningsmanna flokksins skv skoðanakönnun. Hvorki Ögmundur né Jón Bjarnason voru í þrem efstu sætunum og reyndar ekki nefndir í fréttinni af þessari könnun.

Að láta sér detta í hug að lítill minnihlutaklíka geti stjórnað flokknum er ótrúlegur barnaskapur. Ef þessi andstaða hefði einhvern trúverðugleika hefði þetta fólk sagt sig úr flokknum þegar ríkisstjórnin var mynduð.

Nú lítur jafnvel út fyrir að menn séu bara á móti til að vera á móti. Undanskildir eru sjálfstæðismenn eins og Gunnlaugur sem sér VG verða að engu með mikilli velþóknun.  

Ásmundur (IP-tala skráð) 5.11.2012 kl. 16:58

4 identicon

Ég reyni alltaf að taka Munda alvarlega, enda verðum við líka að bera virðingu fyrir okkar smæstu.

Þess vegna er áhugavert að sjá þá skoðun hans, að órólegir þingmenn VG, sem vilja fara eftir stefnu flokksins, beri ábyrgð á tapinu.

Hver ætli sé ástæða þess, að Samfylkignin missir sennilega fleiri þingmenn en VG, og það þrátt fyrir að allir í Samfylkingu séu auðsveipir og mótmæli aldrei forystunni?

En auðvitað verður auðvelt að meta þetta eftir næstu kosningar, þar sem enginn ESB andstæðingur verður í forsvari VG, eða á framboðslista, og allir andstæðingar ESB innan Samfylkingar hafa fyrir löngu verið hraktir frá flokknum.

Sælt verður sameiginlegt skipbrot ESB flokka VG og Samfylkingar, sem missa örugglega 7-8 þingmenn hvor, og hugsanlega fleiri.

En auðvitað verður afhroðið Jóni Bjarna að kenna, jafnvel þó hann verði hvergi nærri þessum flokkum.

Hilmar (IP-tala skráð) 5.11.2012 kl. 17:15

5 identicon

Kemur ekki á óvart að Hilmar kunni ekki að reikna.

Hrun á fylgi VG er sláandi og miklu meira en fylgistap Samfylkingarinnar. Stuðningsmönnum VG hefur fækkað um 45% frá kosningum en Samfylkingin hefur misst 26% af sínum stuðningsmönnum skv nýjustu könnun Capacent.

Það sem sýnir þó best að fylgistap VG hefur ekkert með ESB umsóknina að gera er að nærri ári eftir kosningar, í apríl 2010, var fylgi VG 28% og hafði þá hækkað mikið frá myndun ríkisstjórnarinnar. Nú er það tæp 12% en fylgi Samfylkingarinnar er svipað og í apríl 2010. 

ESB-umsóknin mæltist því vel fyrir meðal stuðningsmanna VG. En eftir því sem sundrungin óx og dróst á langinn minnkaði fylgið.

Steingrímur nýtur þó alltaf mikils trausts.  

Ásmundur (IP-tala skráð) 5.11.2012 kl. 18:16

6 Smámynd: Elle_

Guðfríði er alltof mikið hælt í pistli Ögmundar og víðar.  Og á það ekki skilið. 

Ögmundur, ef þú lest þetta, minni þig á að Guðfríður stakk okkur í bakið í ICESAVE-nauðungarmálinu.  Og það eftir að hafa auglýst vandlega opinberlega að hún væri sko á móti nauðunginni sem Jóhanna væri að lemja yfir hana (og nokkur ykkar sem voruð fyrst á móti og einræðisstýran kallaði v-i-l-l-i-k-e-t-t-i) og ætlaði sko að segja NEI.  Ætla að taka fram að þetta var kannski ekki orðrétt.

Elle_, 5.11.2012 kl. 18:17

7 identicon

Elsku Mundi minn, reikningskunnátta mín kom ekki við sögu í innleggi mínu. Ég hefði að óreyndu haldið, að meðal ESB skussinn gæti skilið að spádómur um missi á 7-8 þingmönnum á hvorn flokk, væri spádómur um missi á 7-8 þingmönnum á hvorn flokk.

Þú getur náttúrulega reynt að æfa þig í reikningi, miðað við skoðanakannanir, en af gefinni reynslu, er mjög ólíklegt að þú komist að annarri niðurstöðu en óskhyggja þín leyfir. Í það minnsta ekkert nálægt raunveruleikanum.

Hitt er svo sérlega skemmtilegt, að þú komist að þeirri niðurstöðu, að kjósendur VG séu þakklátir ESB stefnu flokksins, sérstaklega í ljósi þess að yfir helmingur kjósenda VG eru horfnir, ásamt þeim þingmönnum sem ekki styðja ESB bröltið. Fyrir utan Jón Bjarnason náttúrulega, sem er hinn bölvaldur Íslendinga, ef marka má ykkur Samspillta.

Mikill er máttur Jóns, hann hefur yfirtekið hlutverk Sjálfstæðisflokksins.

Hilmar (IP-tala skráð) 5.11.2012 kl. 19:38

8 identicon

Á þessari vefsíðu hefur í all-nokkurn tíma verið skrifað af þunga gegn forystusveit VG, og formaðurinn og skósveinar hans réttilega sakaðir um svik gegn grasrót flokksins og að bera ábyrgð á fylgishruni hans.

Og svo eru skrifaðir fleiri pistlar, þrungnir réttlátri reiði. Og meira er skrifað. Þung orð látin falla. Það er skrifað og skrifað og skrifað.

En minna fer fyrir framkvæmdunum. Haldið þið virkilega að það dugi eitt og sér að skrifa reiðipistla á vefsíðum? Mun það hægja á helför VG eða snúa þróuninni við? Haldið þið að einn daginn muni Steingrímur sjálfur reka hér inn nefið, renna yfir skrifin og sjá villur síns vegar?

Mikil er trú ykkar ... 

Birgir (IP-tala skráð) 5.11.2012 kl. 21:39

9 Smámynd: Elle_

Það er auðvitað alveg vita vonlaust að halda að Steingrímur lesi eitt eða neitt eða hlusti á eitt eða neitt nema hana elsku Jóhönnu og Össurinn og co. fyrir völd. 

Það var lýðum ljóst frá ICESAVE 1-snúningi Steingríms mikla í alþingi 5. júní, 09, þegar hann birtist með fullbúna nauðung þrátt fyrir lygar 2 dögum fyrr um að það væru ´bara svona þreifingar í gangi´, ekki síður en 16. júlí, 09, að flokkurinn VG væri ónýtur.  Ætli ég þurfi að minnast á ICESAVE 2 + 3?  Þetta er nefnilega sami stjórnarandstæðingurinn og talaði af mikilli mælsku um grímulaust ofbeldi (ICESAVE) gegn okkur veturinn fyrir apríl, 09.

Elle_, 5.11.2012 kl. 22:37

10 identicon

Tíu mánuðum eftir að aðildarumsóknin var samþykkt á Alþingi, eða í apríl 2010, var fylgi Vinstri grænna 28%.

Aðildarumsóknin fór því greinilega ekki illa í stuðningsmenn flokksins. Það er því greinilega önnur ástæða fyrir því að síðan hefur fylgið hrunið úr 28% í 12% á sama tíma og fylgi Samfylkingarinnar hefur lækkað úr 23% í 22%.

Úr því að skýringin er ekki ESB-umsóknin liggur beint við að sundrungin í flokknum sé skýringin einkum í ljósi þess að Samfylkingin hefur nánast ekkert fylgi misst á sama tíma.

Fyrst voru það Lilja Mósesdóttir, Atli og Ásmundur Einar. Þegar þau hurfu úr flokknum, góðu heilli, tóku Jón Bjarnason og Ögmundur við keflinu.

Sjálfstæðismenn hafa verið iðnir við að halda þeim við efnið.

http://www.capacent.is/frettir-og-frodleikur/thjodarpulsinn/ 

Ásmundur (IP-tala skráð) 6.11.2012 kl. 00:09

11 Smámynd: S i g u r ð u r   S i g u r ð a r s o n

Framtaksöm kona í Sjálfstæðisflokknum hefur gert skoðanakönnun meðal frambjóðenda flokksins í suðvesturkjördæmi og Reykjavík um afstöðu þeirra til aðildar að ESB.

Niðurstöður úr SV-kjördæmi hafa verið birtar á þessari vefslóð: http://villagunn.blog.is/blog/villagunn/entry/1266662/ og þær úr Reykjavík verða birtar á sunnudaginn.

Er ekki kominn tími til að einhver framtakssamur Vinstri grænn geri samsvarandi könnun meðal frambjóðenda VG?

S i g u r ð u r S i g u r ð a r s o n, 6.11.2012 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband