Áframhaldandi aðildarferli er ögrun við mikinn meirihluta þjóðarinnar

Undanfarin tvö ár eða frá því að sótt var um ESB-aðild hafa allar kannanir sýnt afdráttarlausa andstöðu meiri hluta landsmanna við inngöngu í ESB. Nú seinast kom í ljós í könnun Capacent Gallup að tveir af hverjum þremur aðspurðum lýsti yfir andstöðu sinni.

Það var Heimssýn sem kostaði þessa könnun og hún leiddi í ljós að 64,5% þjóðarinnar er andvígur aðild en 35,5% hlynntur. Andstaðan hefur vaxið seinustu tvo mánuði úr 57,3% í 64,5%.

Skömmu eftir s.l. áramót kom einnig í ljós í könnun að aðeins 7,6% aðspurðra taldi ESB-aðild brýnt verkefni. Löngu er orðið ljóst að það er fyrst og fremst þröng klíka í forystu Samfylkingarinnar sem keyrir þetta mál áfram. Meiri hluti þingflokks VG lét sig hafa það að hleypa Samfylkingunni áfram með þetta mál þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu landsfundar VG við aðild með þeim einföldu rökum að forvitnilegt gæti verið að "kíkja ípakkann" en síðan fengi þjóðin að eiga seinasta orðið.

Það er að sjálfsögðu í hæsta máta ólýðræðislegt að þjóðin fái ekki tækifæri til að koma að þessu máli fyrr en samningur er fullfrágenginn og hefur verið samþykktur af 27 aðildarríkjum ESB. Fólki ofbýður að milljörðum sé varið í þetta vonlausa og fráleita dekurmál Samfylkingarinnar og þess vegna fer andstaða við allt þetta brölt vaxandi.

Það auðveldar ekki leikinn fyrir þá ESB-sinna að helsta tálbeitan, evran og evrusamstarfið, er nú milli tannanna hjá fólki um alla álfuna. Jafnvel ýmsir sem verið hafa í hópi helstu leiðtoga ESB, eins og t.d. Gordon Brown, fyrrv. forsætisráðherra Breta, og Joschka Fischer, fyrrv.utanríkisráðherra Þýskalands, viðurkenna opinskátt að evrusamstarfið sé meingallað.

Þess verður vart að æ fleiri stuðningsmenn VG sem verið hafa á báðum áttum í afstöðu sinni til aðildarumsóknarinnar furða sig nú á því að aðildarferlinu skuli haldið sleitulaust áfram, eins og ekkert hafi í skorist, og þeim fer mjög fjölgandi sem gera sér ljóst að áframhaldandi aðildarferli ár eftir ár í algerri andstöðu við 2/3 hluta þjóðarinnar er ögrun við lýðræði í landinu.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Dettur einhverjum í hug (öðrum en þeim sem standa að þessari síðu) að könnun, sem er kostuð af Heimssýn, sem eru samtök kostuð af LÍÚ og Bændasamtökunum, helstu hagsmunaaðilum gegn ESB, sé marktæk?

Ég styð það að við látum ekki fullveldið til ESB, en hvenær mun íslenska þjóðin endurheimta fullveldið úr höndum LÍÚ og Bændasamtakanna.

Theódór Norðkvist, 12.8.2011 kl. 17:57

2 identicon

Ekki var spurt um aðildarviðræðurnar í þessari könnun. Því er fyrirsögn þessa pistils tómt rugl. Eins og umræðan hérlendis yfirleitt.

Baldur Ragnarsson (IP-tala skráð) 12.8.2011 kl. 18:13

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Fyrir aðildarsinna er svokallað lýðræði einungis ef það er þeim í hag.

Þeir tala mikið um að lýðræði felist í því að samningum verði lokið svo fólk geti gert upp hug sinn. En er ekki enn meira lýðræði falið í því að fólkið í landinu fái að ákveða hvort farið skuli í þá ferð?

Lýðræðið var freklega brotið á landsmönnum þegar þröngur hópur þingmanna gat með bolabrögðum náð meirihluta fyrir aðildarumsókn. Þá var fólkið í landinu ekki spurt, svo þeir sem aðhyllast þessa óheillaför geta síst talað um lýðræðisleg vinnubrögð!!

Þetta fólk á að skammast sín og ekki nefna lýðræði á nafn sem rök fyrir áframhaldandi aðildarumsókn! Það er ósómi af slíkum málflutningi af hálfu þeirra sem hafa farið svo illilega á svig við lýðræðið í landinu!!

Gunnar Heiðarsson, 12.8.2011 kl. 19:30

4 Smámynd: Vinstrivaktin gegn ESB

Það var ekki Heimssýn eða LÍÚ sem gerði þessa könnun heldur Capacent Gallup. Athugasemd Theódórs Norðkvist missir því algerlega marks.

Það er rétt hjá Baldri Ragnarssyni að ekki var spurt um aðildarviðræðurnar sem slíkar í þessari könnun. En könnun var gerð í júní s.l., einnig af Capacent Gallup, þar sem spurt var hvort aðspurðir vildu að umsóknin yrði hreinlega og formlega dregin til baka og þá reyndist vera skýr meiri hluti fyrir því einnig, eins og áður hefur komið fram, m.a. á þessari síðu. Fyrirsögn pistilsins stenst því fullkomlega. En það er ánægjulegt að sjá að mönnum er ekki sama um þessa niðurstöðu.

Digurbarkaleg fullyrðing Baldurs um að umræðan hérlendis um aðild Íslands að ESB sé tómt rugl er þó óneitanlega sérkennileg. Er sem sagt meira mark takandi á umræðunni um aðild Íslands að ESB einhvers staðar erlendis? Kannski í Brussel?

Vinstrivaktin gegn ESB, 12.8.2011 kl. 19:31

5 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Könnun sem er gerð af Capacent er trúverðugri en könnun sem fréttablaðið og aðrir sambandsinnsamiðlar gera.

Evrópusambandið er á leið í sambandsríki, það er að segja, ef það á ekki að gufa upp þegar Evran heyrir sögunni til eftir 5 ár eða svo að óbreyttu.

Þeir sem sjá evrópusambandið í hillingum ættu að kynna sér örlög Orkneyja, þar sem fólki fækkar og eru færri í dag en fyrir 200árum, Shetland og Nýfundnalands þar sem hnignun og bæði á menningarsviði og efnahagssviði hafa fylgt inngöngu í stærri sambönd með tilheyrandi flutningi á fullveldi. 

Eggert Sigurbergsson, 12.8.2011 kl. 19:47

6 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég hef hvergi haldið því fram að LÍÚ eða Bændasamtökin hafi gert þessa könnun. Hvers vegna missir þá athugasemd mín marks (sem fjallaðir reyndar um margt annað en könnunina?)

Það er samt grunsamlega lítið sagt um þessa könnun. 869 manns spurðir á þremur mánuðum.  Hvernig var úrtakið valið, hvenær var spurt o.m.fl. Var t.d. spurt eingöngu þegar neikvæðar fréttir voru allsráðandi um evruna og skuldugu ríkin?

Það er vond lykt af þessari svokölluðu skoðanakönnun.

Theódór Norðkvist, 12.8.2011 kl. 21:20

7 Smámynd: Eggert Sigurbergsson

Það er vond lykt af þessum svokölluðum sambandsinnum.

Eggert Sigurbergsson, 12.8.2011 kl. 21:48

8 Smámynd: Elle_

Ekkert í ofanverðum pistli er rugl eins og kemur fram í no. 2.  Og könnunin hlýtur að vera óhlutdræg, gerð af óhlutdrægu fyrirtæki, eða er það ekki?  Nokkrir pólitíkusar beittu bolabrögðum og pólitísku ofbeldi.  Og VG fylgdi að mestu, undir hótunum Jóhönnu-flokksins, nægilega til að halda völdum.  Eins og í ICESAVE.  Ekki getur það kallast lýðræði.  Hver á fætur öðrum komu VG-liðar upp í pontu og sögðust vera á móti en segðu samt já, við mundum fá að kíkja í e-n poka sem var fyrirfram vitað að ekkert væri í.  Ef menn hefðu bara lesið sáttmála sambandsins við sambandsríkin hefður þeir vitað hvað var í pokanum: Ekki neitt nema fullveldisafsal og ofsalöngun Jóhönnu og co. 

Elle_, 13.8.2011 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband