Hjörleifur: ESB-andstaðan til vinstri hverfur ekki með hókuspókus-orðaleppum

Hjörleifur Guttormsson segir að hugmyndir um nánara samstarf VG og Samfylkingar séu innihaldslausar meðan grundvallarafstaða flokkanna til ESB-aðildar sé gjörólík.

 

Í upphafi greinar sem hann ritar í Morgunblaðið s.l. föstudag segir hann að niðurstaða kosninganna endurspegli „vonbrigði kjósenda með fráfarandi ríkisstjórn og óraunsæjar væntingar margra um töfralausnir eins og þær sem fólust í kosningaloforðum Framsóknarflokksins.

 

Fráfarandi ríkisstjórn hóf feril sinn vorið 2009 með tundurskeyti í farangrinum þegar ákveðið var að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Forysta VG hefur við engan að sakast nema sjálfa sig vegna fylgistaps í nýafstöðnum kosningum og kom þó fleira til en ESB-umsóknin. Málefnalegt flokksstarf og samráð við grasrótina lagðist að mestu af síðustu árin. Með ákvörðun um að stefna að olíuleit og olíuvinnslu á Drekasvæðinu laskaðist jafnframt alvarlega trúverðugleiki VG í umhverfismálum.  Hrun Samfylkingarinnar er þó enn sögulegra og ástæðurnar margþættar. Ósveigjanlegur starfsstíll og brotlending í stjórnarskrármálinu á þar eflaust drjúgan hlut að máli ásamt niðurskurði til velferðarmála, ekki síst á heilbrigðissviði.

 

Óvenjumikil endurnýjun

 

Sjálfsagt er að óska nýjum þingmönnum til hamingju með inngöngu á þjóðþingið. Endurnýjun er holl fyrir Alþingi svo og aðkoma fulltrúa mismunandi kynslóða. Hins vegar er örskammur starfsaldur þorra þingmanna umhugsunarefni. Ekki færri en 27 nýkjörnir þingmenn taka nú sæti á Alþingi og 14 til viðbótar hafa aðeins átt þar setu síðan 2009. Með ýmsum þeim sem féllu út af þingi í kosningunum eða hættu á kjörtímabilinu hverfur mikilvæg reynsla sem hætt er við að skili sér ekki til nýrra þingflokka. Ég tek sem dæmi umhverfismálin en 2/3 af þeim sem áttu sæti í umhverfis- og samgöngunefnd á síðasta þingi eru nú horfnir af vettvangi. Meðal þeirra sem báru hitann og þungann af þeim málaflokki í tíð fyrri ríkisstjórnar voru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Mörður Árnason, Álfheiður Ingadóttir, Ólína Þorvarðardóttir og Atli Gíslason sem óháður þingmaður. Einnig féll út af þingi Skúli Helgason, formaður þverpólitískrar nefndar um eflingu græna hagkerfisins.

 

Staða umhverfismála áhyggjuefni

 

Margt jákvætt náðist fram í umhverfismálum á síðasta kjörtímabili. Ber þar hæst Rammaáætlun og setningu nýrra laga um náttúruvernd. Svandís Svavarsdóttir var nýliði í þessum málaflokki og tók vorið 2009 við sem ráðherra af Kolbrúnu Halldórsdóttur sem verið hafði öflugur talsmaður VG í náttúruvernd um tíu ára skeið. Skarð Kolbrúnar var vandfyllt en Svandís var fljót að fóta sig á þessu sviði og skilaði um margt góðu verki sem ráðherra. Í ljósi kosningaúrslitanna og viðhorfa stjórnarandstöðunnar á Alþingi síðustu árin er rík ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu umhverfismála í nýju kjörtímabili. Nægir þar að minna á  andóf sjálfstæðis- og framsóknarþingmanna gegn Rammaáætlun og hótunum um að breyta þeirri niðurstöðu sem fékkst við afgreiðslu hennar á þingi. Voru þó í henni alvarlegar brotalamir, einkum varðandi Reykjanesskaga. Umhverfisvernd nýtur vissulega vaxandi stuðnings í samfélaginu eins og mikil þátttaka í Grænu göngunni í Reykjavík 1. maí er til vitnis um. Ráðandi viðhorf og fátæklegur stuðningur við málaflokkinn í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki gefur hins vegar ekki tilefni til bjartsýni á nýbyrjuðu kjörtímabili, nái þessir flokkar saman um stjórnarmyndun.

 

Örar breytingar – nýjar blikur

 

Nýliðin kosningabarátta var efnislega óvenju fátækleg og bar ekki vott um hugmyndaauðgi eða greiningu á örum samfélagsbreytingum sem eiga sér stað hérlendis og á alþjóðavettvangi.

Þannig leiddu flokkarnir að mestu hjá sér að ræða um afstöðuna til Evrópusambandsins, að ekki sé talað um EES-samninginn og þörfina á endurskoðun hans. Hugmyndir um nánara samstarf VG og Samfylkingar sem bar á góma hjá formönnum flokkanna strax og kosningaúrslit lágu fyrir eru innihaldslausar nema annarhvor flokkurinn breyti formlega um grundvallarafstöðu til ESB-aðildar. Tilraunir til málamyndasamstöðu eru dæmdar til að misstakast og ESB-andstaðan til vinstri hverfur ekki með hókuspókus-orðaleppum.

 

Ástand samfélagsmála á Vesturlöndum er uggvænlegt og á rætur í ósjálfbæru hagkerfi sem leiðir rakleitt í öngstræti. Birtingarform þess er annars vegar efnahagskreppur með atvinnuleysi og vaxandi misskiptingu og hins vegar eyðing náttúruauðlinda og ógnvænlegar loftslagsbreytingar. Lausnin sem vísað er á af ráðandi öflum er hagvöxtur drifinn áfram af neyslukapphlaupi og skuldsetningu. Þróunarríki með Kína í fararbroddi feta sömu slóð. Verði ekki róttæk breyting á þessari stefnu rekur mannkyn fyrr en varir upp á sker. Íslendingar búa um margt við betri forsendur en aðrar þjóðir til að snúa af þessari braut, reynslunni ríkari af kollsiglingu haustið 2008. Til að það gerist þarf í senn að varðveita og treysta sjálfsforræði þjóðarinnar og ryðja braut fyrir nýja hugsun þar sem sjálfbærni og hófstilling eru höfð að leiðarljósi. Mættum við biðja fyrr en seinna um Alþingi sem hlúir að slíkum breytingum.“

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Innan ESB eru helstu öfgaöfl heimsins á sviði "umhverfisverndar" Þetta fólk sem kallar sig Græningja hefur snúið sér að því á öfgakenndan hátt að trúa á það sem það kallar "náttúruvernd" í stað þess að trúa á Nazisma, Kommúnisma eða Fasisma, sem það hefði trúað á ef ekki hefði komið til skipbrot fyrrnefndra öfga.Íslenskir umhverfisöfgamenn eru í fjórum flokkum á Íslandi,VG,Samfylkingu,Bjartri framtíð og Pírötum.Þrír síðastnefndu flokkarnir vilja að Ísland gangi í ESB.Ég spái því að ekki verði langt í það að VG lýsi yfir vilja til þess líka, til þess að geta sameinast umhverfisöfgafólki í Evrópu, þar sem Eva nokkur Joly heldur með öðrum um stýrið.íslenskt öfgaumhverfisfólk reynir að telja fólki trú um að það sé vinstra fólk.Það er rangt.Það lýgur þessu upp til að kimast að stjórnun þeirra flokka sem kalla sig vinstri flokka.Menn skulu hafa það hugfast að fyrsti umhverfisráðherra heimsins var í ríkisstjórn Adolfs Hitlers.Það yrði sannkolluð ormahreinsun ef íslenskt öfgaumhverfisfólk héldi sig í einum flokki, eins og er víða í Evrópu.Það yrði þá auðveldara fyrir vinstra fólk og aðra að vita hvar það stæði.Og auðveldara að stjórna landinu af einhverju viti.

Sigurgeir Jónsson, 4.5.2013 kl. 16:45

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Öfgauhverfisöfgaflokkarnir, VG,Samfylking og Hreyfingin  misstu 22 af 38 þingmönnum sínum í kosningunum.Það eru tæplega 2/3 þingmannafjöldans.Vonandi tekst að þurka allt umhverfisöfgafólk út af þingi í næstu kosningum.

Sigurgeir Jónsson, 4.5.2013 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband