Gjöldum varhug við hugmyndafræði getuleysisins!

Þurfa Íslendingar að eiga stóra bróður til að horfa yfir öxlina á sér til að eiga sér framtíð? Þannig spyr Tómas Ingi Olrich, fyrrv. alþingismaður og ráðherra. Og hann heldur áfram:

„Hver á að horfa yfir öxlina á okkur? Ljóst er að Evrópusambandið á fullt í fangi með að glíma við þá falsmynd sem sköpuð hefur verið um styrkleika evrunnar. Eru það Bandaríki NorðurAmeríku sem eiga að horfa yfir öxlina á Íslendingum og kenna þeim þá dyggð að safna ekki ríkisskuldum og stofna ekki til viðskiptaskulda. Hafa yfirleitt einhverjar þjóðir áhuga á því að horfa yfir öxlina á Íslendingum og segja þeim til.“

Tómas Ingi hefur skrifað margar ágætar greinar að undanförnu í Morgunblaðið og gert athugasemdir við þau rök sem færð hafa verið fyrir aðild Íslands að ESB. Í grein sem birtist í dag tekur hann fyrrverandi þingkonu Sjálfstæðisflokksins til bæna. Hann minnir á að í fyrstu hafi hrun fjármálamarkaða komið allmörgum Íslendingum til að trúa því að þeir ættu ekki annars úrkosti en að sækja um aðild að ESB. Þessi fyrrverandi þingkona „sem virðist telja okkur betur borgið innan sambandsins, benti á að kreppan, sem dunið hefði yfir Íslendinga og leikið þá grátt, gæfi vísbendingar um að það væri þjóðinni hollt að hafa einhvern sem gætti okkar og liti yfir öxlina á okkur. Af þessu og ýmsu í svipuðum dúr, sem birst hefur opinberlega, er ljóst að nú á 68. aldursári lýðveldisins eru í gangi alvarlegar hugleiðingar um að Íslendingar hafi alls ekki til þess getu og burði að reka sjálfstætt ríki. Hér hefur sem sagt verið reistur gunnfáni getuleysisins. Málsmetandi menn hafa skipað sér undir hann.“

Tómas Ingi minnir á að Íslendingar hafi byggt upp sterkt þjóðfélag á eigin forsendum og fram undir 2008 hafi Ísland verið skólabókardæmi innan OECD um vel heppnaða efnahagsstjórn. Gjalda verði varhug við þeirri uppgjöf og uppáskrift á hugmyndafræði getuleysisins að Íslendingar komist ekki af án þess að hafa stóra bróður til að horfa yfir öxlina á sér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Ég veit að þið sem eruð á móti ESB og Evrunni hafði ekki tekið eftir þessu. Það er þannig að evran er orðin 11% sterkari gangvart USD en hún var fyrir ári síðan.

Þetta má sjá á vefsíðu ECB, ásamt gengi evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum heimsins. Nema auðvitað íslensku krónunar, sem ekki er hægt að versla með á frjálsum markaði vegna hafta.

Tómas Ingi færir ekki nein rök fyrir máli sínu. Þetta er allt saman þvættingur hjá honum, sem er vel orðaður, en þvættingur engu að síður. Maðurinn hefur ekki nein fyrir rök því sem hann heldur fram um ESB og hugsanlega ESB aðild Íslands.

Vel heppnuð efnahagsstjórnun Íslands var lygi og ekkert annað. Það er nú bara þannig að logið var að OECD með röngum gögnum á sínum tíma. Enda hrundi allt sem hrunið gat á Íslandi árið 2008, og að einhverju leiti þá er allt að hrynja ennþá á Íslandi vegna hörmurlegar efnahagsstjórnunar sjálfstæðisflokksins og framsóknarflokksins frá árinu 1995.

Það besta sem gæti komið fyrir íslenskan almenning væri aðild Íslands að Evrópusambandinu. Enda er nóg komið af einangrun Íslands og þeirri einokun sem er stunduð á Íslandi í skjóli þessar einangrunar sem íslenskt efnahagslíf er í núna í dag.

Það er nefnilega áhugaverð staðreynd að EES samningurinn er hættur að gagnast íslenskum almenningi eins og til var ætlast. Hinsvegar gagnast EES samningurinn útflytjendum á Íslandi ágætlega og hefur væntanlega alltaf gert það.

Það er kominn tími til þess að breyta þessu, og það verður eingöngu gert með ESB aðild Íslands.

Jón Frímann Jónsson, 13.8.2011 kl. 19:45

2 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

ESB er Málið! En, og ég endurtek, en aðeins ef Íslenzka þjóðin hefur svo fullkomlega tapað tiltrú sinni á innlenda stjórnmálamenn að þjóðin telur vænlegra að fela á ný erlendum aðilum yfirráð íslands. Kannske væri þá bara minna vesen að biðja Dani fyrirgefningar á 1944, og fá Dönsku þjóðina til að taka aftur við taumunum. Segja einfaldlega við Íslendingar eru því miður óhæfir til að halda á landsmálum, eins og nýjustu dæmi hafa kannske sannað og Össur í örvæntingu sinni til að bjarga þjóðinni frá Jóhönnustjórninni reynir að koma Íslandi undir Brussel. Össur trúir greinilega ekki á að hann verði forsætisráðherra, eða treystir ekki eigin getu til að taka á málum Íslands, nema tala við mömmu Merkel fyrst!

Kolbeinn Pálsson, 13.8.2011 kl. 21:03

3 Smámynd: Snorri Hansson

Nú skiljum við hvers vegna ríkisstjórnin er svona duglaus. Meirihluti hennar er á móti því að hlutirnir batni. Þetta er fyrsta ríkisstjórn íslandssögunar sem er beinlínis og vísvitandi að vinna gegn hagsmunum íslenskrar þjóðar og gegn sjálfstæði hennar. Þetta eru hræðilegir tímar.

Snorri Hansson, 14.8.2011 kl. 02:27

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Mikil er ást Jóns Frímanns á einhverju sem hann í raun og veru veit minna en ekkert um hvað boðar. Undarlegur málflutningur að segja okkkur sem erum á móti aðild, til og tukta, en vita í raun ekki nokkurn skapaðan hlut um boðskapinn annað en það sem honum hefur verið sagt að breiða til fjöldans. Það er undarlegur andskoti, að nú, 67 árum eftir að þessi löngum kvalda þjóð loks öðlaðist sjálfstæði, skuli vaða hér uppi hópur fólks sem vill afsala sér valdinu aftur til útlanda. Lái mér því hver sem vill, en alla Jóni Frímanna þessa lands fæ ég ekki með nokkru móti skilið. Ef einu rök aðildarsinna eru þau að innlendum stjórnmálamönnum sé helst um að kenna ógöngur okkar, er ekki við nokkurn annan að sakast en illa upplýstan almenning, sem kýs eins og ..... á kjördag. Gleymum því hins vegar ekki að víðast hvar heitir þetta lýðræði.

Halldór Egill Guðnason, 14.8.2011 kl. 03:23

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er búið að SLÁ ÖLL RÖK Jóns Frímanns niður, fyrir innlimun Íslands í ESB, samt heldur þessi apaköttur (ég bið apana velvirðingar á samlíkingunni) áfram að berja hausnum í steininn.  Þetta segir bara eitt um manninn "HANN ER FERKANTAÐUR LEÐURHAUS" ÞEGAR HANN HEFUR TEKIÐ EINHVERJA VITLEYSU Í SIG ÞÁ ER EKKI FYRIR ANDSKOTANN AÐ SNÚA OFAN AF KJAFTÆÐINU OG BULLINU Í HONUM.

Jóhann Elíasson, 14.8.2011 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband