Upptaka evru voru mestu mistök Íra

Írski hagfræðiprófessorinn Anthony Coughlan hélt fyrirlestur um Írland og ESB í Háskóla Íslands s.l. miðvikudag. Í viðtali sem Örn Arnarson tók við hann fyrir viðskiptablað Mbl. fimmtudag 26. maí undir fyrirsögninni „Feigðarför keltneska tígursins" segir Coughlan m.a. að „sagan kenni mönnum að skuldavandi ríkja verði aðeins leystur með tvennum hætti: Annaðhvort með því að greiða af skuldum í krafti aukins hagvaxtar eða þá að menn brenni þær upp á verðbólgubáli. Fyrri kosturinn kemur vart til greina á evrusvæðinu, þar sem skilyrðin sem Þýskaland og önnur stöndug ríki evrusvæðisins hafa sett skuldugustu ríkjunum felast í miklum niðurskurði og aðhaldi sem dregur úr varanlegri eftirspurn og útilokar þar með hagvöxt. Síðari kosturinn kemur ekki til greina fyrir evruríkin nema þau kasti evrunni og taki á ný upp sinn eigin gjaldmiðil.

Í krafti þessa telur Coughlan ríki á borð við Írland hafa gert grundvallarmistök þegar ákveðið var að taka upp evruna. Hann gengur svo langt að segja að upptaka evrunnar hafi verið stærstu mistök sem írsk stjórnvöld hafi nokkurn tíma gert og ábyrgðin liggi hjá ráðamönnum sem hafi tekið hagsmuni Evrópu framyfir hagsmuni írska ríkisins."

Í viðtalinu ræðir Coughland ítarlega um „keltneska tígurinn" en svo var írska hagvaxtarundrið nefnt á sínum tíma, þ.e. á árunum 1993-1999 en þá var írska pundið látið fljóta. Síðan var gjaldmiðill landsins læstur í aðdragandanum að upptöku evrunnar. Coughland bendir á að á þeim tíma sem peningamálastefna írskra stjórnvalda byggðist á fljótandi gengi hafi það veitt hagkerfinu viðunandi sveigjanleika og tryggt samkeppnisstöðu útflutningsins gagnvart helstu mörkuðum. Hann segir í lok viðtalsins: „Veiking (írska) pundsins á tíunda áratugnum kom keltneska tígrinum á legg eins og hagvaxtartölur sýna. Hins vegar olli lágvaxtarstigið á evrusvæðinu sem var meðal annars tilkomið vegna bágborins efnahagsástands í stærstu hagkerfum myntbandalagsins, það er Þýskalandi og Frakklandi, umtalsverðum vandamálum fyrir hið ört vaxandi (írska) hagkerfi eftir að evran var tekin upp."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband