Schengen-aðild andstæð íslenskum hagsmunum

Æ fleiri eru að átta sig á að eftirlitslaus umferð yfir landamæri á Schengen-svæðinu er himnasending fyrir skipulögð glæpagengi sem hagnast ótæpilega á eiturlyfjasmygli, þjófnaði og mansali. Aðvörunarorð vegna Schengen-kerfisins berast nú úr ýmsum áttum.

Norðurlönd og Eystrasaltsríkin


Í lok apríl 2011 sendi Arne Johannessen formaður Landssambands lögreglumanna í Noregi og varaformaður Sambands norrænna lögreglumanna opið bréf til Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs með kröfu um að tekin verði hið fyrsta upp vegabréfaskoðun gagnvart Eystrasaltsríkjunum. Í erindi sínu segir þessi trúnaðarmaður norrænna lögregluþjóna að 80% af utanaðkomandi glæpastarfsemi á Norðurlöndum eigi upptök sín í þessum löndum. Geri yfirvöld í Eystrasaltsríkjum ekki gangskör að því að uppræta hjá sér glæpagengin hljóti að verða að endurskoða Schengen-sáttmálann frá grunni. Arne Johannessen er þekktur fyrir einarðan málflutning og hann er eins og norski dómsmálaráðherrann félagi í Verkamannaflokknum.

Hvað segir Europol um Balkanríkin?


Litlu seinna eða 4. maí 2011 sendi Europol, lögreglustofnun ESB, frá sér skýrslu um skipulagða glæpastarfsemi með sértöku tilliti til fyrirhugaðrar aðildar Búlgaríu og Rúmeníu að Schengen. Sem flestir ættu að kynna sér þessa skýrslu Europol sem er afhjúpandi um afleiðingar þess að afnema landmæraeftirlit. Þar er rakið hvernig þrælskipulagðir glæpahópar nýta sér óhindrað ferðafrelsi innan Schengen-svæðisins í samspili við frjálst vöruflæði og samskiptamöguleika á Netinu. Balkanlöndin eru í sívaxandi mæli notuð til eiturlyfjasmygls í stórum stíl, m.a. á kókaíni frá Rómönsku-Ameríku. Aðild Búlgaríu og Rúmeníu að Schengen myndi stækka til muna landamæri svæðisins í austurátt með auknum möguleikum á hverskyns smygli og mansali. Tengsl á milli glæpahópa hafa styrkst til muna að undanförnu og þeir nýta sér allar finnanlegar smugur í auðgunarskyni.

ESB í vandræðum með Schengen


Í framhaldi af þessu brást framkvæmdastjórn ESB við sívaxandi gagnrýni innan aðildarríkjasambandsins á Schengen-kerfið vegna skipulagðrar glæpastarfsemi og flóttamannastraums. Sænski kommissarinn Cecilia Malmström sendi frá sér skýrslu 4. maí þar sem settar eru fram hugmyndir um breytingar á Schengen-samningnum. Samkvæmt gildandi ákvæðum Schengen geta aðildarríkin aðeins gripið til eftirlits á innri landamærum ef mikil hætta er talin á ógnun við almannareglu (public order). Aðeins örfá dæmi eru um slík inngrip og framkvæmdastjórn ESB reynir að halda í slíkt sem algjöra undantekningu og að tilskilið sé samþykki hennar fyrirfram. Jafnframt er rætt um að efla gæslu á ytri landamærum svæðisins og sá möguleiki nefndur að koma upp blandaðri löggæslu manna frá ýmsum aðildarríkjum til starfa við vörslu ytri landamæra. Gert er ráð fyrir að afstaða verði tekin til þessara tillagna á leiðtogafundi ESB í lok júní 2011.

Hver er afstaða íslenskra stjórnvalda?


Það voru mikil mistök frá upphafi að binda Ísland við Schengen-samninginn, ekki síst eftir að hann varð órjúfanlegur hluti af ESB. Sem eyland höfum við ekkert nema skaða af því að bindast þessu regluverki meginlandsríkja og halda hér uppi landamæravörslu fyrir Evrópusambandið. Aðvaranir og kröfur Sambands norrænna lögregluþjóna eru orð í tíma töluð og er þó aðstaða Skandínava með samliggjandi landamæri önnur en okkar Íslendinga. Íslensk stjórnvöldum ber fyrr en seinna að kveða upp úr um afstöðu sína til Schengen-aðildar. Þar stendur valið milli öryggishagsmuna íslensks almennings eða að halda áfram sem fjarstýrður tengivagn ESB-kerfisins.

 

Hjörleifur Guttormsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband